Færsluflokkur: Matur og drykkur

hvað með hafnaraðstöðu

Það má vel vera að betra hefði verið að smíða nýtt skip. Ég hef þó meiri áhyggjur á endalausum töfum á afhendingu skipsins sem skýrist líklega af auknum viðgerðum. Það sem ég hef þó mestar áhyggjur af er ferjuhöfnin fyrir skipið í Dalvíkurhöfn, ríkið virðist vinna þar á hraða snigilsins þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá yfirvöldum í Dalvíkurbyggð
mbl.is Kostnaður við breytingar á Grímseyjarfjerju yfir 500 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar framundan

Spennandi tími framundan, finnst alltaf aðdragandi kosninga mjög skemmtilegur og trúi ekki öðru en að úrslit kosninganna verði okkur framsóknarmönnum hagstæðari en skoðanakannanir benda til. HEf það mikla trú á íslendingum að ég tel að þeir vilji ekki að Sjálfstæðismenn nái nánast að verða sjálfráða um það hvernig landinu verði stjórnað næstu 4 árin og guð hjálp okkur ef VG ná þeim árangri sem skoðanakannanir benda til. Stefnuskrá þeirra virðist mér samanstanda af því að stoppa alla framþróun í landinu og stanslausa eyðslu. Stefna okkar framsóknarmanna er hins vegar skýr við viljum framþróun, nýta náttúraðlindirnar í sátt við umhverfið, sjálfbært samfélag, bæta hag hinna verst stöddu en okkur finnst samt allt í lagi að þeir sem eru ríkir séu það áfram, viljum jöfnuð upp á við en ekki niður á við eins og mér sýnist VG vilja. Þá tel ég nú að framsóknarflokkurinn sé sá flokkur sem styður jafnrétti kynjanna mest í raun, eini flokkurinn sem er með jafnan fjoölda karla og kvenna í efsta sæti framboðslista, með jafnan hlut karla og kvenna í þingsætum og ráðherrastólum og ég á nú eftir að sjá það að karlar í hinum flokkunum hleypi konum sem eru í 2 eða 3 sæti fram fyrir sig í röðina þegar kemur að því að velja ráðherraefni. Þá stóð framsókn fyrir því að jafna rétt karla og kvenna til töku fæðingarorlofs sem er eitt mesta framfaraskrefið í jafnréttismálum á Íslandi, þá styður framsóknarflokkurinn afnám launaleyndar. Svo ég segji nú bara X-B 12. maí.

Gleðilegt sumar

Samkvæmt dagatalinu er sumarið komið og hef ég sterklega á tilfinningunni að það sé rétt handan við hornið og það verði milt og gott er þó ekki alveg viss um hversu sólríkt það verður. Umsíðustu helgi dvaldi ég með 7 frábærum hjúkrunarfræðingum í Amsterdam, veðrið dásamlegt, félagsskapurinn ógleymanlegur, mikið drukkið af bjór (líka ég sem drekk ekki bjór að öllu jöfnu), borðaður góður matur, mikið talað, hlegið, en kannski ekki svo mikið skoðað, bara rölt á milli bjórkránna í rólegheitunum, til marks um það var ég sú eina sem fór á safn og er ég nú ekki sú safnaglaðasta í heiminum, tiltölulega litlum tíma varið í verslanir ekki nema 1-2 tími á dag, gat þó verslað annsi mikið á stuttum tíma enda orðin vel þjálfuð í þeim bransa semsagt í alla staði frábær ferð sem verður vonandi endurtekin að ári, þó svo hún verði til einhverrar annarrar borgar. Verð áfram á faraldsfæti, næst er það hjúkrunarforstjórafundur á Selfossi á fimmtudag og föstudag, ætli ég fari svo ekki í Biskupstungurnar eftir það, trúi ekki öðru en að blessað barnið verði fætt hjá Heiðu og Axel. Síðan stefnir allt í suðurferð 4-8 maí, Fulltrúaþing FÍH 7 og 8 maí. Svo er það útskrift hjá Völu og Trausta í lok maí og þá verður barnið hjá Heiðu og Axel líka skírt svo hægt verði fyrir norðanfólkið að samnýta ferðina. Allt að fara í betri farveg í vinnunni, veikindin heldur í rénun og búin að ráða sumarafleysingafólkið, allt að komast í góðan gír þar og vonandi fer maður að sjá fram á daga þar sem hægt er að gera fleira en það allra nauðsynlegasta.

 


Páskafrí

Loksins komin í páskafrí eða þannig, er reyndar á bakvakt þar til í fyrramálið og svo aftur á laugardag til mánudags, gæti reyndar breyst vegna veikinda hjá þeirri sem átti að taka við bakvaktinni í dag. Búið að vera alveg geggjað að gera í vinnunni undanfarið, hef bara aldrei kynnst öðru eins heilsuleysi og verið hefur hér undanfarið bæði hjá íbúum og starfsfólki. Reyni þó að vera bara 8-9 klst. á dag í vinnunni en síðan hef ég þurft að sinna ýmsu vinnutengdu heima í allt að 4 klst. á dag, svo ég er nú að verða ansi þreytt á þessu ástandi. Sem betur fer er ég með frábært samstarfsfólk sem hafa staðið sig eins og hetjur í öllu þessu álagi, en því miður nær maður bara að gera það allra nauðsynlegasta á hverjum degi og ýtir öllu hinu á undan sér og vonar að ástandið fari svo að skána einhvetímann og þá verði tími til að vinna upp halann sem safnast. Ekki enn búin að manna sumarið og hefur þetta aldrei gengið svona illa að koma þessu heim og saman, enda aldrei tími til að sinna þessu almennilega en vonast til að ná að koma þessu heim og saman á morgun eða í síðast lagi á laugardag. Svo verð ég í fríi alla næstu viku og ekki skipulögð mæting í vinnuna fyrr en 16. apríl. Stefni á Reykjavík á annan í páskum og svo er það Amsterdam 12. apríl. Sem betur fer hefur verið pása í pólitíkinni síðustu daga, þó einn stuttur fundur í dag enda veit ég ekki hvernig það hefði líka átt að komast fyrir.

Gleðilega páska


Árið er liðið

Það var fyrir akkúrat ári að ég sá frétt í mogganum um bloggsíur tengda morgunblaðinu, var nú ekki viss hvort þetta væri aprílgabb eða hvað en ákvað allavegana að prufa að skrá mig fyrir síðu, finnst svo flott að vera með síðu á mínu nafni og var og er enn svekkt yfir að ná ekki netfangi á skírnarnafninu mínu, en hvað kom í ljós, jú þetta var sannleikur ég náði síðu með mínu skírnarnafni en hvað svo. Ekki hef ég nú beint verið dugleg í þessum bloggbransa en blogga þó alltaf öðru hvoru, á þó enn eftir að ná tökum á lúkkinu og að setja inn myndir er nú ekki beint dugleg í myndartökunum, segi stundum að ef ég muni ekki myndefnið sé það ekki þess virði að eiga mynd af því. Ætla alltaf öðruhvoru að taka mig á og vera duglegri í þessu en er hætt að lofa nokkru, svík þá ekkert.

En að málefnum líðandi stundar, niðurstaða komin í kosningarnar í Hafnarfirði og þeir sem vilja kyrrstöðu og afturhald í atvinnumálum höfðu betur, það gæti þó komið sér vel hér á norðurlandi, kannski aukast þá möguleikar Húsvíkinga á að fá álver eða annan stóratvinnuvinnustað í héraðið. Þau þar ættu að hafa allt með sér, næga orku, hentugt landsvæði, stutt í alla stoðþjónustu og eru tilbúin með mótvægisaðgerðir í formi gróðursetningar. Áfram Húsavík, í þessu sambandi vakti athygli mína að á fund um álver á Bakka þorði enginn af efstu frambjóðendum VG að mæta og standa fyrir máli sínu vissu líklega sem var að það yrði ekki til að halda í atkvæðin í kjördæminu.

Hér á Dalvík er búin að vera þvílíka bongóblíðan um helgina, hitinn um miðjan daginn í gær fór í 20° C á óopinberum hitamæli, hugsanlega var raunhitinn eitthvað lægri og í dag virðist allt stefna í ljómandi gott veður hiti, sól með köflum og rigningarsuddi með köflum. Farin að klæja í fingurnar að fara í vorverkin en þori þó eiginlega ekki að storka orlögunum með því strax, ef viðrar svona vel áfram stefnir þó allt í það að ég byrji á vorvekunum um páska.

Annars er alltaf nóg að gera (sem betur fer) stefnir þó í frekar rólegt ástand í fundamálum á næstunni vegna fjölda frídaga, svo er Amsterdamferð 12-15. apríl og aftur suðurferð 25. apríl - 1. maí. Svo þarf ég að fara að drífa mig í að henda og gefa úr geymslunni, svo það verði fljótlegra að losa íbúðina þegar og ef ég get selt, því ég er tilbúina að losa íbúðina nánast um leið ef ég get selt. 


Hið sanna andlit Össurar

Er að horfa á Silfur Eigils þar sýnir Össur svo sannarlega sitt rétta andlit. Yfirlýsingar hans um að vilja samstöðu um auðlindarfrumvarpið var algjörlega marklaus eini tilgangur hans var að reyna að kljúfa ríkisstjórnina


Illu er best aflokið

Ja þetta segir máltækið allavegana. Var að klára skattskýrsluna, á að vísu eftir að senda hana á skattinn, því mig langaði að sjá bráðabirgðaútreikninginn áður og ég gat ekki fengið hann fram í tölvunni minni, reyni það á morgun í vinnunni. Fæ alltaf létt þunglyndiskast þegar ég geri skattskýrsluna og sé tekjurnar en er ekki alveg með það á hreinu í hvað allir þessir peningar hafa farið. Er þó fljót að jafna mig og fór og pantaði bækur á amazon og silkinærföt (útivistar) frá kanadísku fyrirtæki. Búin að vera þvílíkt dugleg um helgina, því fyrir utan skattskýrsluna, þá tók ég allt húsið í gegn, þvoði, þurrkaði og gekk frá 4 þvottavélum, bakaði eldaði og ýmislegt smálegt. Hef þó mest legið í leti í dag, hangið á netinu, en letidagar eru algjör nauðsyn öðru hvoru. Veðrið í dag líka kjörið í þetta því það er hríðarhraglandi úti en þó ekki nein illska hér á Dalvíkinni. Markiðið að fara í ræktina í fyrramálið svo ég geti sagt að ég sé að reyna mitt besta í því, enda endurkoma á Kristnes á morgun og á Lansanum á mánudag eftir viku. Hef ekkert lést síðustu vikurnar, verð kannski bara að sætta mig við þessi 80 kíló sem eru farin, vildi þó gjarnan missa 15 - 20 kíló í viðbót.


skyldur heildsala

Ég hélt að lyfjabyrgjar væru skyldir til að eiga tiltekið lágmark af nauðsynlegum lyfjum til á markaðnum. Hafa þó líklega lítinn áhuga á að eiga þetta lyf þar sem það er eitt af þessum gömlu og góðu lyfjum sem lítill hagnaður er að selja
mbl.is Tiltekið geðlyf ekki fáanlegt í nokkrar vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að búa í Dalvíkurbyggð

Hef ekki verið að standa mig í blogginu (sem er nú ekkert nýtt). Get þó ekki sagt að lítið hafi verið um að vera en það er þetta að gefa sér tíma í bloggskrifin.

Í lok febrúar skrapp ég í 6 daga til Kaupmannahafnar og hafði þat gott í faðmi fjölskyldunnar þar, takk fyrir að leyfa mér alltaf að gista Þóra, Össi og börn. Náði m.a. að vera í afmælinu hans Matthíasar og fara á skemmtun á Klúbbnum hjá Ingva og Matthíasi, svo var náttúrulega farið í búðir og gengið mikið og farið á kaffihús eins og vera ber.

Kom heim mátulega til að fara á flokksþing Framsóknar, fyrsta skipti sem ég er á fullburða flokksþingi hjá þeim og var það mjög ánægjulegt í alla staði og var endað á skemmtun á laugardagskvöldinu sem tókst alveg frábærlega.

Síðasta vikan hefur verið venju fremur ánægjuleg, byrjaði á laugardag að fara í spa og matarklúbb með góðum vinkonum á Akureyri, mikið borðað, talað og hlegið, TAKK stelpur. Á þriðjudag var ég viðstödd þegar börnin á Krílakoti tóku fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu við leikskólann sinn og loksins fer að koma að því að leikskólinn verði fullbyggður, á miðvikudagskvöld var saumaklúbbur á Akureyri og eins og vanalega frábært að hitta hjúkkurnar sem útskrifuðust með mér og eru á Akureyri. Á fimmtudaginn var aukafundur í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar þar sem við samþykktum fyrir okkar leyti aðkomuna að menningarhúsinu sem Sparisjóðurinn ætlar að gefa okkur íbúum Dalvíkurbyggðar að því loknu fórum við í skoðunarferð á vegum veitnanna þar sem nýja holan á Brimnesborgum og dælustöð fráveitunnar var formlega gangsettar sem og fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum veitnanna voru kynntar. Þessari stórhuga viku lauk síðan á föstudagskvöldið með því að ég fór og var viðstödd undirritun samnings milli Sparisjóðs Svarfdæla og Dalvíkurbyggðar um menningarhús, einnig voru veittir styrkir úr menningarsjóð Sparisjóðsins samtals að upphæð tæpar 5 milljónir. Greinilega besta fólkið á landinu sem stendur að Sparisjóðnum og ef aðrar fjármálastofnanir stæðu sig sambærilega væri hér á Íslandi öflugast mannlíf í heimi.

Dagurinn í dag fer í tiltekt og ætli ég verði ekki að gera skattskýrsluna á morgun illu er best aflokið í því eins og svo mörgu öðru.

Af húsbyggingunni er ekkert að frétta enda ekkert að frétta af sölumálum á íbúðinni og svo er nú ekki enn búið að staðfesta deiliskipulagið þar sem lóðin "mín" er.

Næstu helgi verð ég fyrir sunnan, fundur á föstudag vera með frænkum mínum á laugardag og sunnudag og síðan heimsókn til læknis á mánudag. Aprílmánuður er síðan þéttskipaður af fundum, utanlandsferð og suðurferðum.

Kveðja frá besta bæ landsins


húsbyggjandinn

Tók afdrifaríka ákvörðun í vikunni. Sótti um draumalóðina mína og fékk henni úthlutað. Að vísu er eftir að samþykkja endanlegt deiliskipulag af svæðinu, en tel þó ekki líklegt að því verði breytt hvað varðar þessa lóð. Svo nú á næstunni þarf að taka margar keðjuverkandi ákvarðanir. Fyrst er náttúrulega að setja íbúðina mína á sölu og ná að selja hana. Þetta er nú íbúð á besta stað í bænum svo vonandi tekst það fljótt og vel. Svo þarf að fá lánsloforð hjá íbúðalánasjóði, ákveða hvernig húsið á að vera, finna mér stað að búa á meðan á framkvæmdum stendur (því ég mun losa íbúðina sem fyrst ef ég get selt hana) og huga að öllu mögulegu og ómögulegu sem þessu fylgir. Veit ekki alveg hvað ég er að koma mér út í. Svo er ég að fara í nokkra daga til Koben 24. feb. - 1. mars og svo fer ég til Amsterdam 12. - 15. apríl og fullt af öðrum ferðum sem mig langar í, en verð kannski að fresta um tíma.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband