hálka eða aksturslag

Held að oftast sé nú spurning um hvort keyrt sé í samræmi við aðstæður. Er sannfærð um að sjaldan sé hægt að kenna vegi eða akstursskilyrðum um heldur er ekið of hratt miðað við aðstæður og stundum ætti maður bara alls ekki að vera á ferðinni
mbl.is Þrír bílar út af á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður að meiru

Verð að segja að ég tek ofan fyrir Jóni Ásgeiri og mæta í Silfrið hjá Agli. Annað en hinir sem fela sig erlendis og tjá sig ekki um nokkur skapaðan hlut. Að vísu var Lýður Guðmundsson í stuttu viðtali fyrir helgi. Ekki er það nú svo að ég trúi endileg Jóni Ásgeiri en hallast þó alltaf meir og meir að því að það að láta Glitni rúlla hafi tryggt það að hinir bankarnir féllu. Ef Glitnir hefði fengið að starfa aðeins lengur hefði gefist meiri tími og þá hugsanlega unnist tími til að bjarga Kaupþingi. Orð Davíðs í Kastljósi þess efnis að við myndum ekki greiða skuldir "óreiðumanna" í útlöndum fóru síðan endanlega með þetta. Meðan við sjáum ekki eða heyrum viðtal Árna Matt við Darling, trúi ég því að árni hafi ekki náð að leiðrétta þessi orð Davíðs.
Jón Ásgeir til hamingju með að hafa haft þor til að mæta í Silfrið.

Dvel ég í draumahöll

Og hvað heldu Geir að hafi valdið þessum harkalegu viðbrögðum breta. Ég tel að það séu ummæli og hegðun Davíðs sem Geir bakkar síðan alla upp
mbl.is Forsætisráðherra: Breska fjármálaeftirlitið felldi Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með Davíð

Þannig að gáleysilegt orðalag seðlabankastjóra ýtti Kaupþingi yfir brúnina. Hvaða annar seðlabankastjóri í heiminum heldi starfinu eftir þessa frammistöðu. Hvað með það þó þurfi að borga honum starfslokagreiðslu. Ég er tilbúin að borga upp í hana. Kannski ætti almenningur að fara að safna fyrir henni, ég er til í að aðstoða við það.
mbl.is Atburðir í Bretlandi felldu Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danska leiðin

Hvað í ósköpum veldur að ekki er hægt að gera hlutina svipað hér. Er ástæðan kannski sú að eigendur bankanna eru búnir að blóðmjólka eignina svo að engin raunveruleg verðmæti eru eftir. Allir og ég meina þá allir verða að koma að borðinu og þeir sem hafa grætt sem mest á uppgangnum verða einnig að taka á sig mesta skellinn. Kannski væri bara réttara að ganga aftur í ríkjasamband við Dani.
Forsætisráðherra er engan veginn að standa sig, fundar og fundar en gerir síðan ekki neitt. Ef sitjandi ríkisstjórn á að ráða við vandann er ljóst að hann verður að víkja fyrir Þorgerði Katrínu. Hún er þó sú eina í þessu liði sem þorir að svara Davíð. Hann er síðan sérkapítuli. Legg ekki dóm á það hér hvort hann er faglega fær um að vera seðlabankastjóri en í ljósi fyrr stjórnmálasögu og illvilja gagnvart sumum þá er trúverðugleiki hans enginn í þessu starfi.


Gott hjá Þorgerði

Fegin að það er a.m.k. 1 sjálfstæðismaður til sem lætur ekki Davíð valta yfir sig. Þorgerður reyndar 1 af sárafáum sjálfstæðismönnum sem ég get stutt
mbl.is Biðlað til helstu vinaþjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvaða, hvaða

Til hvers voru þessir samningar gerðir ef ekki á að nýta sér þá, hlýtur að vera betra að nýta þetta en lífeyrissparnaðinn
mbl.is Sænskur gjaldeyrisskiptasamningur ekki virkjaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki missa móðinn

Augljóst að margir eru farnir að finna fyrir þunglyndiseinkennum eftir atburði undanfarna daga í fjármálum íslendinga. Nú ríður því á að halda ró sinni og vinna saman að lausnum og þá þurfa allir að geta verið sæmilega sáttir við lausnirnar. Held að þau sem eru að vinna að þessu á opinberum vettvangi séu ekki öfundsverð að verki sínu en nú þarf að horfa til framtíðar en ekki velta sér upp úr því liðna. Þau mistök sem hafa verið gerð er ekki endilega hægt að leiðrétta en auðvitað er nauðsynlegt at læra af reynslunni og kryfja málin til mergjar þegar um hægist. Og munum að allt sem fer niður fer aftur upp það er bara spurning um tíma og auðvitað fara ekki allir sem fara vel út úr niðursveiflunni.
Horfum bjartsýn fram á veginn og stöndum saman.


Að bjarga eða sýna ábyrgð

Er þetta spurningin um að bjarga sjálfstæðisflokknum eða að sýna þann þroska að mynda starfhæfan meirihluta, sé ekki hverjir aðrir gátu gert það úr því sem komið var.
mbl.is Svandís segir ástandið í borginni snúið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítin tík pólitíkin

Mér sem forföllnum áhugamanni um pólitík finnst pólitíkin alltaf verða undarlegri og undarlegri og ekki skrítið þó stór hluti þjóðarinnar viti ekkert hvað hann á að kjósa. Vil ég nefna tvo mál sem vöktu athygli mína þegar ég var að lesa moggann í morgun. Fyrst las ég grein eftir Björk Vilhelmsdóttur um "þvingaða sambúð" á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Ekki ætla ég að mæla því bót að óskyldir og ótengdir aðilar þurfi að deila herbergi í ellinni. En er ekki meira forgangsmál að tryggja öllum örugga þjónustu. Reyndar héld ég að víðast sé nóg framboð af rýmum en breyta þarf dvalarrýmum í hjúkrunarrými og auka framboð á heimahjúkrun og heimilishjálp sem og dagvistun og skammtímavistun svo sem flestir sem það kjósa geti dvalið heima eins lengi og kostur er. Hitt málið var um "hraðbrautirnar" út frá Reykjavík, ástæða alltof margra slysa á vegunum er sjaldnast vegirnir heldur ökuhraðinn og aksturslagið, það er sama hversu breiðir vegirnir eru það breytir engu um ábyrgð ökumanna. Afþví að mikil umræða hefur veruð um veginn austur fyrir fjall undanfarið þá vakti það athygli mína í síðustu viku þegar ég fór tvisvar sinnum til Selfoss og aftur til baka til Reykjavíkur að mér fannst núverandi vegur vel anna þeirri umferð sem var og var ég nú bæði á ferðinni á annatíma og rólegum tíma og veður ýmist gott og rok og rigning, þannig að mér sem engum sérstökum sérfræðingi í umferðamálum fannst að með því að gera 2+1 veg alla leið á Selfoss og jafnvel lengra væru öryggismál á þessari leið í góðum málum. Í vegagerð eins og öðru er mikilvægt að fara vel með það takmarkaða fé sem í boði er og að tryggja öruggar samgöngur um ALLT LAND finnst mér mikilvægara en gæluverkefni í fjölmenninu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband